Unglingalandsliðskonan Kolbrá Una til Gróttu á láni (Staðfest)

Kolbrá ásamt Melkorku Fl. Pétursdóttur aðstoðarþjálfara Gróttu.

Mynd: Grótta

Hin 16 ára gamla Kolbrá Una Kristinsdóttir er gengin til liðs við Gróttu frá Val á láni út tímabilið.
Kolbrá er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og á að baki 16 landsleiki fyrir U16 og U17 ára landslið Íslands. Hún er miðjumaður en getur einnig leyst það að spila sem bakvörður og miðvörður.
Kolbrá er uppalin í Val og tók sín fyrstu skref með meistaraflokki KH árið 2021. Hún lék með Val í Lengjubikarnum í vetur og spilaði tvo leiki fyrir félagið í sumar í Mjólkurbikarnum og Bestu deild kvenna.
„Það er gleðiefni að fá Kolbrá inn í okkar góða hóp. Hún er spennandi leikmaður sem var byrjunarliðsmanneskja í U17 ára landsliðinu," segir Pétur Rögnvaldsson, þjálfari Gróttu.
„Við í Gróttu stöndum fyrir það að gefa ungu og metnaðarfullu fólki tækifæri og koma Kolbrár rímar sannarlega við þá stefnu. Loks þakka ég Val fyrir gott samstarf í tengslum við félagaskiptin."
Grótta er sem stendur í fimmta sæti Lengjudeildar kvenna, aðeins fimm stigum frá öðru sæti. Liðið er þá með leik til góða á Fylki sem er í augnablikinu í öðru sæti.

Í leik með U17 landsliðinu gegn Portúgal.

Mynd: Portúgalska fótboltasambandið