Afturelding fær tvo leikmenn (Staðfest)

Lilja Björk í leik með Álftanesi á síðasta ári

Mynd: Toggi Pop

Kvennalið Aftureldingar hefur styrkt sig fyrir seinni hluta tímabilsins með tveimur leikmönnum en Lilja Björk Unnarsdóttir er komin á láni frá Selfossi og þá er Meghan Callahan Root mætt frá Bandaríkjunum.
Lilja Björk er fædd árið 2006 en hún spilaði einn leik með Selfyssingum i Bestu deildinni í sumar.
Hún hefur einnig spilað fyrir ÍA og Álftanes í 2. deildinni en mun nú klára tímabilið með Aftureldingu í Lengjudeildinni á láni frá Selfyssingum.
Meghan Callahan Root kemur þá úr bandaríska háskólaboltanum en hún er fædd árið 1999.
Afturelding er í 6. sæti Lengjudeildarinnar með 14 stig en liðið er nýliði í deildinni eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni á síðasta ári.