Fotbolti.net
20.07.23 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Valgeir Árni í Leikni (Staðfest)

Valgeir Árni í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Leiknir R. er búinn að krækja sér í Valgeir Árna Svansson, 25 ára varnarmann sem kemur úr röðum Fylkis.

Valgeir er alinn upp hjá Aftureldingu og var byrjunarliðsmaður í Lengjudeildinni 2020 og 2021 áður en hann flutti til Noregs til að spila með Hönefoss.

Valgeir er fenginn til að fylla í skarðið sem Hjalti Sigurðsson skilur eftir sig í leikmannahópi Leiknis. Hjalti er á leið í háskólanám í Bandaríkjunum.

„Valgeir skrifar undir til 2024 og við bjóðum kappann kærlega velkominn í Breiðholtið," segir meðal annars í tilkynningu Leiknis.

Leiknir er um miðja Lengjudeild með 14 stig eftir 12 umferðir, sex stigum fyrir ofan Njarðvík sem vermir fallsæti. Leiknir tekur á móti Þrótti í kvöld klukkan 19:15 á Domusnova.

Hjalti fer út í nám.

Hjalti fer út í nám.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.