Fotbolti.net
21.07.23 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea lánar lærisvein Heimis til Ipswich (Staðfest)

Chelsea lánar lærisvein Heimis til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur lánað Omari Hutchinson til enska B-deildarfélagsins Ipswich Town og mun hann eyða allri leiktíðinni hjá félaginu.
Hutchinson er 19 ára gamall kantmaður sem er uppalinn á Englandi en foreldrar hans koma frá Jamaíku og valdi hann því að spila fyrir þjóðina en Heimir Hallgrímsson er einmitt þjálfari liðsins.

Leikmaðurinn ólst upp hjá Chelsea en fór til nágranna þeirra í Arsenal árið 2015 áður en hann sneri aftur á síðasta ári.

Hann mun nú eyða næsta tímabili á láni hjá Ipswich sem er nýliði í ensku B-deildinni.

Hutchinson kom við sögu í tveimur leikjum með aðalliði Chelsea á síðasta tímabili en báðir leikirnir voru gegn Manchester City í byrjun janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.