Ólafur Flóki á láni í Grindavík (Staðfest) - Með bróður sínum í gulu

Ólafur Flóki spilaði með Leikni fyrri hluta tímabilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bakvörðurinn Ólafur Flóki Stephensen er kominn á láni í Grindavík frá Valsmönnum en þetta var tilkynnt núna í morgun.
Flóki er bróðir Kristófer Konráðssonar og munu þeir bræður vera báðir í gulu út tímabilið. Þeir geta báðir leyst stöðu vinstri bakvarðar en Kristófer getur einnig spilað framar á vellinum.
Ólafur Flóki er fæddur árið 2004 og er uppalinn Stjörnunni og í Val en hann hefur verið í úrtakshópi hjá U19 ára landsliðinu.
Hann lék einn leik með Val í Bestu deildinni á síðasta ári.
Ólafur Flóki, sem fór á reynslu til ítalska félagsins Torino í fyrra, lék með Leikni fyrri hluta tímabilsins og kom þar við sögu í fjórum leikjum í deild og bikar. Í þeim leikjum skoraði hann eitt mark.
Grindavík er sem stendur í fimmta sæti Lengjudeildarinnar.