Fotbolti.net
21.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Eyrún Vala frá Stjörnunni í HK (Staðfest)

Eyrún Vala frá Stjörnunni í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Stjarnan

Hertz
Eyrún Vala Harðardóttir mun klára tímabilið með HK á láni frá Stjörnunni.
Eyrún, sem er fædd árið 2004, samdi við Stjörnuna fyrir tímabilið eftir að hafa heillað með Aftureldingu í Bestu deildinni á síðasta ári.

Þá skoraði hún 2 mörk í 4 deildarleikjum en hún hefur aðeins spilað tvo deildarleiki með Stjörnukonum á þessu tímabili.

Hún mun nú hjálpa HK-ingum í baráttu liðsins um að komast upp í efstu deild en hún verður á láni út leiktíðina.

HK-ingar eru í 3. sæti með 20 stig, þremur stigum frá toppnum þegar átta umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.