Fotbolti.net
20.07.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Al-Nassr krækti í Seko Fofana (Staðfest)

Al-Nassr krækti í Seko Fofana (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Al-Nassr er búið að tilkynna kaup á miðjumanninum Seko Fofana sem kemur frá Lens fyrir um 30 milljónir evra.

Fofana er 28 ára gamall og var mikilvægur hlekkur í liði Lens sem náði óvænt öðru sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð, þar sem liðið endaði aðeins einu stigi á eftir Frakklandsmeisturum PSG.

Fofana er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar eftir að hafa spilað 33 leiki fyrir unglingalandslið Frakklands. Hann hefur leikið fyrir Udinese, Fulham og Bastia á ferlinum eftir að hafa verið í akademíu Manchester City í þrjú ár.

Cristiano Ronaldo er fyrirliði Al-Nassr og eru David Ospina og Marcelo Brozovic einnig samningsbundnir félaginu. Þá hittir Fofana góðvin sinn úr landsliði Fílabeinsstrandarinnar, vinstri bakvörðinn Ghislain Konan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.