Fotbolti.net
21.07.23 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Redmond til Burnley (Staðfest)

Redmond til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur staðfest kaup á vængmanninum Nathan Redmond sem hefur gert tveggja ára samning eftir að hann yfirgaf Besiktas í sumar.

Þessi 29 ára leikmaður skoraði sex mörk í 28 leikjum á síðasta tímabili og er með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað sjö tímabil fyrir Southampton í deildinni.
Redmond segir að markmið sitt hafi verið að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni en Burnley komst upp úr Championship á síðasta tímabili.

Vincent Kompany stjóri Burnley telur að hann geti styrkt liðið innan og utan vallar fyrir komandi tímabil.

Burnley kann að kynna nýja leikmenn á skemmtilegan hátt:

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.