FRÉTTIR07.07.2023, 12:12
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið lánuð frá Bayern München til Bayer Leverkusen fyrir komandi tímabil.
Karólína fór til Bayern í janúar 2021 og hefur leikið 34 leiki fyrir félagið. Hún þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá félaginu.
Á heimasíðu Bayern München er henni óskað góðs gengis í lánsdvölinni og sagt að þessi 21 árs leikmaður muni öðlast mikilvæga reynslu í Bundesligunni.
FRÉTTIR07.07.2023, 07:30
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur verið kynntur sem nýr leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Midtjylland. Hann mun klæðast treyju númer 15 á Jótlandi.
„Sverrir er varnarmaður með alþjóðleg gæði og mikla reynslu. Við höfum verið að leita að leiðtogatýpu og hann uppfyllir það alla leið. Sverrir getur stýrt vörninni og er karakter sem gerir aðra í kringum sig betri," segi Svend Graversen, íþóttastjóri Midtjylland.
FRÉTTIR06.07.2023, 23:30

Rangers er búið að krækja í nígeríska framherjann Cyriel Dessers, sem skoraði 7 mörk í 29 leikjum er Cremonese endaði á botni ítölsku Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR06.07.2023, 22:00

Ótti bandaríska viðskiptajöfursins John Textor er að verða að raunveruleika þar sem félagslið í hans eigu halda áfram að missa sína mikilvægustu menn til Sádí-Arabíu.

FRÉTTIR06.07.2023, 21:03

Eintracht Frankfurt er búið að ganga frá lánssamningi við Leeds United til að tryggja sér þjónustu þýska miðvarðarins Robin Koch, sem á 8 leiki að baki fyrir landslið Þýskalands.

FRÉTTIR06.07.2023, 19:00

Það er nóg um að vera hjá Arsenal í dag þar sem félagið er búið að staðfesta nýjan langtímasamning við Reiss Nelson.

FRÉTTIR06.07.2023, 18:54

Ítalski landsliðsmaðurinn Davide Frattesi er genginn til liðs við Inter á lánssamningi með kaupskyldu.

FRÉTTIR06.07.2023, 18:40

Real Betis er búið að staðfesta komu Ayoze Perez á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leicester City rann út. Hann gerir fjögurra ára samning við spænska félagið.

FRÉTTIR06.07.2023, 18:20

AC Milan er búið að krækja í argentínska táninginn Luka Romero á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Lazio rann út.

FRÉTTIR06.07.2023, 16:41

Svissneski miðjumaðurinn Granit Xhaka er búinn að kveðja Arsenal til að skrifa undir hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

FRÉTTIR06.07.2023, 15:30
Varnarmaðurinn reynslumikli Cesar Azpilicueta hefur formlega verið kynntur sem leikmaður Atletico Madrid.
Þessi 33 ára leikmaður getur bæði leikið sem miðvörður og bakvörður en hann var fyrirliði Chelsea.
FRÉTTIR06.07.2023, 13:31
Hinn átján ára gamli Arda Guler hefur gengið í raðir Real Madrid frá tyrkneska félaginu Fenerbahce. Hann hefur gert sex ára samning við Madrídarfélagið.
Á morgun verður hann formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum og hann mun svo sitja fyrir svörum á fréttamannafundi.
FRÉTTIR06.07.2023, 12:28
PSG hefur opinberað Marco Asensio sem nýjan leikmann félagsins. Spænski sóknarmaðurinn kemur til PSG á frjálsri sölu frá Real Madrid.
Samningur Asensio var að renna út og hefur hann nú yfirgefið spænsku höfuðborgina eftir níu ár og ógrynni af titlum hjá Real.
FRÉTTIR06.07.2023, 12:25
Luis Castro hefur verið kynntur sem nýr stjóri Al-Nassr í Sádi-Arabíu en hann lætur af störfum hjá Botafogo í Brasilíu til að halda á vit ævintýranna í Mið-Austurlöndum.
Hjá Al-Nassr verður hann stjóri Cristiano Ronaldo og Marcelo Brozovic sem kom frá Inter nýlega.
FRÉTTIR06.07.2023, 10:43
Varnarmaðurinn Milan Skriniar hefur gert fimm ára samning við Paris St-Germain en hann kemur á frjálsri sölu frá Inter.
Slóvakíski landsliðsmaðurinn lék í fimm ár með Inter og varð ítalskur meistari 2021.
FRÉTTIR05.07.2023, 20:39

Jose Sito er genginn til liðs við KF en hann gerir samning við félagið út þetta tímabil.

FRÉTTIR05.07.2023, 19:30

Benfica hefur staðfest komu Angel Di María til félagsins en hann snýr aftur eftir 13 ára fjarveru.

FRÉTTIR05.07.2023, 18:30
Þróttur Vogum hefur samið við Birki Þór Guðmundsson sem fær leikheimild með félaginu þegar glugginn opnar þann 18. júlí.
Birkir er 26 ára varnar- og miðjumaður sem hefur verið hjá norska D-deildarliðinu Volda frá því að hann gekk í raðir þess í fyrra.
FRÉTTIR05.07.2023, 17:00
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Atletico Madrid í sumarglugganum. Bakvörðurinn Javi Galan kom frá Celta Vigo fyrr í þessari viku og nú er tyrkneski landsliðsmiðvörðurinn Caglar Söyuncu mættur.
Söyuncu kemur á frjálsri sölu frá Leicester City en enska liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Atletico.
Söyuncu er 27 ára og kemur með aukna breidd í vörn Diego Simeone. Leikmaðurinn var í brasi með spiltíma á síðasta tímabili en vill koma ferlinum aftur á almennilegt skrið.
FRÉTTIR05.07.2023, 16:30
Sheffield Wednesday hefur ráðið Xisco Munoz sem nýjan stjóra félagsins en síðustu vikur hafa verið vangaveltur um hver tæki við af Darren Moore.
Moore var látinn fara þrátt fyrir að hafa komið miðvikudagsmönnum upp í Championship-deildina.