Fotbolti.net
06.07.23 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Dessers kominn til Rangers (Staðfest)

Dessers kominn til Rangers (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Rangers er búið að krækja í nígeríska framherjann Cyriel Dessers, sem skoraði 7 mörk í 29 leikjum er Cremonese endaði á botni ítölsku Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð.

Dessers var ekki spenntur fyrir að spila í Serie B og samþykkti Cremonese 5 milljón evru tilboð frá Rangers, með 1,5 milljón aukalega í árangurstengdar greiðslur. Þetta er svipað verð og Cremonese borgaði til Genk til að kaupa leikmanninn.

Dessers er 28 ára gamall og á eitt mark í fjórum landsleikjum fyrir Nígeríu. Hann er sjötti leikmaðurinn sem bætist við hópinn hjá Rangers í sumar eftir Abdallah Sima, Sam Lammers, Jack Butland, Dujon Sterling og Kieran Dowell.

Það er gríðarlega mikilvægt sumar framundan hjá félaginu þar sem margir lykilmenn eru á leið burt og hefur félagið áhuga á minnst tveimur leikmönnum til viðbótar í sumar. Annar þeirra er framherjinn Danilo, eða Danielo eins og hann er kallaður, hjá Feyenoord og hinn er miðjumaðurinn Jose Cifuentes hjá Los Angeles FC. 


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.