Fotbolti.net
06.07.23 - 13:31
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Arda Guler til Real Madrid (Staðfest)

Arda Guler við flugvöllinn í Istanbúl, áður en hann flaug til Spánar.

Arda Guler við flugvöllinn í Istanbúl, áður en hann flaug til Spánar.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn átján ára gamli Arda Guler hefur gengið í raðir Real Madrid frá tyrkneska félaginu Fenerbahce. Hann hefur gert sex ára samning við Madrídarfélagið.

Á morgun verður hann formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum og hann mun svo sitja fyrir svörum á fréttamannafundi.
Þessi hæfileikaríki, nútímalegi og bráðefnilegi sóknarmiðjumaður var með riftunarákvæði í samningi sínum sem Real Madrid nýtti sér.

Real Madrid borgar 20 milljónir evra fyrir Guler auk bónusgreiðslna. Þá mun Fenerbahce fá 20% af söluverðinu ef hann verður seldur í framtíðinni.

Guler hefur þegar leikið fjóra landsleiki fyrir Tyrkland en hann er örvfættur miðjumaður sem getur einnig spilað á kantinum. Fjölmiðlar í Tyrklandi hafa kallað hann 'tyrkneska Messi'.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.