Fotbolti.net
06.07.23 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Ayoze Perez skiptir til Real Betis (Staðfest)

Ayoze Perez skiptir til Real Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Real Betis er búið að staðfesta komu Ayoze Perez á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leicester City rann út. Hann gerir fjögurra ára samning við spænska félagið.

Perez er 29 ára kantmaður sem spilaði 114 leiki á fjórum árum hjá Leicester og vann enska bikarinn með liðinu 2021. Þar áður var hann lykilmaður í liði Newcastle en átti erfitt uppdráttar eftir félagsskiptin til Leicester, sem borgaði um 30 milljónir punda fyrir hann sumarið 2019.

Perez var lánaður til Betis síðasta janúar til að lækka launakostnaðinn hjá Leicester og hjálpaði hann liðinu að enda í sjötta sæti spænsku deildarinnar, sem gefur þátttökurétt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. 

Perez skoraði fjögur mörk í 21 leik með Betis á meðan Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.