Fotbolti.net
06.07.23 - 21:03
Ívan Guðjón Baldursson

Frankfurt fær Koch frá Leeds (Staðfest)

Frankfurt fær Koch frá Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Eintracht Frankfurt er búið að ganga frá lánssamningi við Leeds United til að tryggja sér þjónustu þýska miðvarðarins Robin Koch, sem á 8 leiki að baki fyrir landslið Þýskalands.

Koch verður hjá Frankfurt á láni út tímabilið, en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Leeds og verður því frjáls ferða sinna næsta sumar.

Leeds borgaði 15 milljónir evra til að kaupa Koch af Freiburg sumarið 2020 en þarf að losna við varnarmanninn af launaskrá hjá sér eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni.

Koch, sem getur einnig leikið sem akkeri aftarlega á miðjunni, spilaði 77 leiki á þremur árum hjá Leeds, en rúmur helmingur þeirra (39) var á síðustu leiktíð.

Frankfurt endaði í sjöunda sæti þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur því þátt í Sambandsdeildinni í haust.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.