Karólína Lea lánuð til Leverkusen (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið lánuð frá Bayern München til Bayer Leverkusen fyrir komandi tímabil.
Karólína fór til Bayern í janúar 2021 og hefur leikið 34 leiki fyrir félagið. Hún þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá félaginu.
Á heimasíðu Bayern München er henni óskað góðs gengis í lánsdvölinni og sagt að þessi 21 árs leikmaður muni öðlast mikilvæga reynslu í Bundesligunni.

Karólína er sóknarleikmaður sem hefur spilað 27 landsleiki fyrir Ísland og skorað átta mörk.
Bayer Leverkusen hafnaði í fimmta sæti Bundesligunnar á síðasta tímabili en Bayern München vann deildina.