Fotbolti.net
06.07.23 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Nelson og Nwaneri verða áfram hjá Arsenal (Staðfest)

Nelson og Nwaneri verða áfram hjá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera hjá Arsenal í dag þar sem félagið er búið að staðfesta nýjan langtímasamning við Reiss Nelson.

Vængmaðurinn Nelson spilaði átján leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði eftirminnilegt sigurmark í rosalegum leik gegn Bournemouth.

Nelson er 23 ára gamall og rann út á samningi fyrir viku síðan, en vildi frekar vera áfram hjá Arsenal heldur en að skipta til Brighton, AC Milan eða Crystal Palace sem eru meðal félaga sem reyndu að semja við hann.

Hann á í heildina 66 leiki fyrir Arsenal og fær tækifæri til að reyna að brjótast inn í byrjunarliðið á komandi leiktíð. Það verður þó ansi erfitt þar sem Nelson er í beinni samkeppni við Gabriel Martinelli og Leandro Trossard um sæti í byrjunarliðinu.

Nelson var lykilmaður upp yngri landslið Englands þar sem hann á 22 mörk í 39 leikjum, en hann á eftir að taka stökkið upp í A-landsliðið.

Þá verður hinn bráðefnilegi Ethan Nwaneri áfram innan herbúða Arsenal eftir að hann skrifaði undir skólasamning við félagið með loforði um að skrifa einnig undir atvinnumannasamning eftir áramót.

Leikmenn mega ekki skrifa undir atvinnumannasamninga fyrr en þeir ná 17 ára aldri en Arsenal er að gera sitt besta til að halda í Nwaneri, sem er eftirsóttur af Chelsea og báðum Manchester-liðunum. 

Nwaneri þykir einn af efnilegustu miðjumönnum Evrópu og er algjör lykilmaður í U17 landsliði Englands með 8 mörk í 17 leikjum. Hann er sóknarsinnaður og getur einnig leikið úti á vinstri kanti eða í holunni fyrir aftan fremsta sóknarmann.

Chelsea bauð Nwaneri frábæran samning í sumar en táningurinn hefur haldið með Arsenal frá blautu barnsbeini og vildi aldrei skipta um félag.

Per Mertesacker, Mikel Arteta og Edu voru allir með í samningsviðræðunum við Nwaneri þar sem þeir útskýrðu fyrir honum þá framtíð sem hann gæti átt fyrir sér hjá Arsenal. Það var nóg til að sannfæra miðjumanninn um að vera áfram og gefa loforð fyrir atvinnumannasamninginn.

Nwaneri varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar á Englandi þegar hann kom inn af bekknum í 3-0 sigri gegn Brentford í september. Hann var 15 ára og 181 dags gamall og bætti úrvalsdeildarmet Harvey Elliott auðveldlega, auk þess að bæta 58 ára gamalt efstudeildarmet sem markvörðurinn Derek Foster setti með Sunderland í ágúst 1964.

Nelson og Nwaneri ákváðu því báðir að vera áfram hjá Arsenal þrátt fyrir mikinn áhuga frá öðrum félagsliðum.

Nelson og Nwaneri verða áfram hjá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nelson og Nwaneri verða áfram hjá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.