Sito mættur til KF (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jose Sito er genginn til liðs við KF en hann gerir samning við félagið út þetta tímabil.
Þessi reyndi framherji kemur til liðsins til að aðstoða það í fallbarátunni í 2. deild. Liðið er á botninum og er þremur stigum frá öruggu sæti.
Sito hefur leikið með ÍBV, Grindavík og Fylki í tveimur efstu deildum hér á landi. Hann hefur skorað 39 mörk í 130 leikjum í öllum keppnum.
Hann er 34 ára en hann fæddist í Bandaríkjunum en er einnig með spænskan ríkisborgararétt. Hann kemur til KF frá spænska félaginu Bergantinos. Hann lék 15 leiki með ÍBV í Bestu deildinni síðasta sumar.
Jose Sito Seoane í KF
— KF (@KFthunders) July 5, 2023
KF hefur sótt liðsstyrk fyrir komandi baráttu í 2.deild. Jose Sito hefur skrifað undir samning við félagið út tímabilið.
Sito hefur svo sannarlega sannað sig hér á Íslandi sem alvöru striker en hann hefur spilað með liðum eins og ÍBV, Grindavík og Fylkir. pic.twitter.com/MRrFk5x2qE


