Fotbolti.net
07.07.23 - 07:30
Elvar Geir Magnússon

Sverrir Ingi til Midtjylland (Staðfest)

Sverrir Ingi Ingason er kominn í treyju Midtjylland.

Sverrir Ingi Ingason er kominn í treyju Midtjylland.

Canon

Mynd: Midtjylland

Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur verið kynntur sem nýr leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Midtjylland. Hann mun klæðast treyju númer 15 á Jótlandi.

„Sverrir er varnarmaður með alþjóðleg gæði og mikla reynslu. Við höfum verið að leita að leiðtogatýpu og hann uppfyllir það alla leið. Sverrir getur stýrt vörninni og er karakter sem gerir aðra í kringum sig betri," segi Svend Graversen, íþóttastjóri Midtjylland.
Sverrir er 29 ára, hefur leikið 42 landsleiki fyrir Ísland, og kemur til Midtjylland frá PAOK í Grikklandi. Hann gerir fimm ára samning.

„Midtjylland er félag sem hefur gert mjög vel á undanförnum árum og er sífellt að hækka rána. Það er búið að kynna stefnu liðsins fyrir mér og hún rímar við minn metnað sem fótboltamaður," segir Sverrir við heimasíðu danska félagsins.

„Ég er hér mættur til að leggja mig 100% fram og ég hlakka til að vera hluti af þeirri velgengni sem við setjum stefnuna á í framtíðinni. Ég hef spilað í mörgum mismunandi löndum og umhverfum og nú spila ég í danska boltanum í fyrsta sinn."

Sverrir var hluti af PAOK liðinu sem sló Midtjylland út úr Sambandsdeildinni 2022. Hann lék þá allar mínúturnar í báðum leikjunum en gríska liðið vann að lokum í vítakeppni.

Sjá einnig:
Sverrir Ingi sagður fá 180 milljónir í árslaun í Danmörku
Sverrir Ingi til Midtjylland (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.