Davide Frattesi til Inter (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ítalski landsliðsmaðurinn Davide Frattesi er genginn til liðs við Inter á lánssamningi með kaupskyldu.
Inter fær Frattesi frá Sassuolo sem hefur verið meðal virkustu félaga ítalska boltans í fyrri hluta sumargluggans.
Kaupverðið er óuppgefið en það er talið nema um 40 milljónum evra í heildina. Inter er sagt greiða um 6,5 milljónir strax í lánskostnað og 27 milljónir í kaupskyldu á næstu leiktíð, en svo eru rúmar 5 milljónir í árangurstengdar aukagreiðslur.
Samkvæmt Fabrizio Romano mun Sassuolo svo fá Samuele Mulattieri frá Inter, en hann er 22 ára sóknarmaður sem gerði flotta hluti á láni hjá Frosinone í Serie B á síðustu leiktíð.
Frattesi er 23 ára og var í lykilhlutverki hjá Sassuolo. Hann er nýlega búinn að ryðja sér leið inn í ítalska landsliðið og á sex leiki að baki þrátt fyrir að berjast við leikmenn á borð við Marco Verratti Jorginho og Nicoló Barella um byrjunarliðssæti.
Frattesi er fenginn til að fylla í skarðið sem Marcelo Brozovic skilur eftir sig á miðjunni hjá Inter eftir að hann var seldur til Al-Nassr á dögunum.


