Fotbolti.net
05.07.23 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Di María mættur aftur til Benfica (Staðfest)

Di María mættur aftur til Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Benfica hefur staðfest komu Angel Di María til félagsins en hann snýr aftur eftir 13 ára fjarveru.

Þessi 35 ára gamli Argentínumaður hóf ferilinn sinn í Evrópu þegar hann gekk til liðs við Benfica árið 2007 en hann yfirgaf portúgalska félagið árið 2010 og gekk til liðs við Real Madrid.

Hann hefur einnig leikið með Manchester United, PSG og nú síðast Juventus en samningur hans við ítalska félagið rann út í sumar og fer hann því á frjálsri sölu til Benfica.

Fabricio Romano greinir frá því að hann skrifi undir eins árs samning við portúgalska liðið. Hann mætir til Portúgal á morgun og aðdáendur fá tækifæri á að hitta hann.

Hann varð heimsmeistari með Argentínu í vetur en landi hans Nicolas Otamendi leikur með Benfica.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.