Fotbolti.net
06.07.23 - 10:43
Elvar Geir Magnússon

Skriniar gerði fimm ára samning við PSG (Staðfest)

Skriniar gerði  fimm ára samning við PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Milan Skriniar hefur gert fimm ára samning við Paris St-Germain en hann kemur á frjálsri sölu frá Inter.

Slóvakíski landsliðsmaðurinn lék í fimm ár með Inter og varð ítalskur meistari 2021.
Hann er 28 ára og gengur í raðir PSG degi eftir að Luis Enrique var staðfestur sem nýr stjóri.

„PSG er eitt sterkasta félag heims, með heimsklassa leikmenn og heimsklassa stuðningsmenn. Ég er mjög ánægður með að verða hluti af þessu yndislega félagi," segir Skriniar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.