Fotbolti.net
06.07.23 - 16:41
Ívan Guðjón Baldursson

Xhaka til Leverkusen (Staðfest)

Xhaka til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Svissneski miðjumaðurinn Granit Xhaka er búinn að kveðja Arsenal til að skrifa undir hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Leverkusen er talið borga 25 milljónir evra fyrir Xhaka, sem gerir fimm ára samning við félagið.

Xhaka er þrítugur miðjumaður sem var fyrirliði Arsenal í rúman mánuð haustið 2019 og lék 297 leiki fyrir félagið.

Samband hans við stuðningsmenn Arsenal var stormasamt á köflum en orðið frábært í lokin og átti Xhaka undursamlegt síðasta tímabil, þar sem hann var lykilmaður í velgengni Arsenal og skoraði 9 mörk í 47 leikjum í öllum keppnum.

Declan Rice mun fylla í skarðið fyrir Xhaka, en hann verður keyptur fyrir rúmar 100 milljónir punda frá nágrönnunum í West Ham United. Hann verður kynntur sem nýr leikmaður Arsenal á næstu dögum.

Xhaka er fyrirliði svissneska landsliðsins og á 15 mörk í 115 leikjum fyrir þjóð sína.

Hjá Leverkusen mun hann spila í Evrópudeildinni eftir að liðið endaði í sjötta sæti þýsku deildarinnar þökk sé góðri markatölu á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.