Asensio til PSG á frjálsri sölu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
PSG hefur opinberað Marco Asensio sem nýjan leikmann félagsins. Spænski sóknarmaðurinn kemur til PSG á frjálsri sölu frá Real Madrid.
Samningur Asensio var að renna út og hefur hann nú yfirgefið spænsku höfuðborgina eftir níu ár og ógrynni af titlum hjá Real.
Samningur Asensio var að renna út og hefur hann nú yfirgefið spænsku höfuðborgina eftir níu ár og ógrynni af titlum hjá Real.
Aston Villa, Arsenal og Manchester United voru sögð áhugasöm en að lokum stóð valið milli Aston Villa og PSG og varð PSG fyrir valinu.
PSG greinir frá því að Asensio skrifi undir þriggja ára samning við félagið. Asensio er 27 ára spænskur landsliðsmaður sem kom til Real frá Mallorca árið 2014.
Á liðnu tímabili skoraði hann níu mörk og lagði upp sex í 30 leikjum fyrir Real sem endaði í 2. sæti La Liga. Einungis Karim Benzema og Vinicius Junior skoruðu fleiri mörk fyrir Real í deildinni.

Paris Saint-Germain are delighted to announce the signing of Marco Asensio.
— Paris Saint-Germain (@PSG_English) July 6, 2023
The Spanish forward joins the Parisian club on a three-year deal through to June 2026.#WelcomeAsensio https://t.co/TtYQUGK3mW