Fotbolti.net
06.07.23 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Romero og Colombo til Milan (Staðfest)

Romero og Colombo til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

AC Milan er búið að krækja í argentínska táninginn Luka Romero á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Lazio rann út.

Romero er 18 ára kantmaður sem kom við sögu í fjórtán leikjum í Serie A á síðustu leiktíð.

Hann gerir fjögurra ára samning við Milan og verður áhugavert að fylgjast með þróun hans á næstu árum.

Romero á fjögur mörk í tíu landsleikjum fyrir yngri lið Argentínu og er hann yngsti leikmaður til að hafa komið við sögu í La Liga, efstu deild spænska boltans, þegar hann var á mála hjá Mallorca fyrir þremur árum.

Milan er þá einnig búið að klófesta Lorenzo Colombo, framherjann sem bjargaði Lecce frá falli úr Serie A í næstsíðustu umferð á nýliðinni leiktíð. Þar kom hann inn af bekknum og skoraði sigurmark gegn Monza úr vítaspyrnu.

Colombo var hjá Lecce á láni með kaupmöguleika, sem Lecce ákvað að nýta sér. Milan svaraði þó með að nýta sinn eigin endurkaupsrétt á leikmanninum og tapar í heildina einni milljón evra á þeim viðskiptum.

Colombo er 21 árs gamall og á 45 leiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu. Hann hefur komið við sögu í ellefu keppnisleikjum með Milan en hann skoraði 6 mörk í 34 leikjum á láni hjá Lecce.

Romero og Colombo til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.