Castro nýr stjóri Ronaldo og félaga í Al-Nassr (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luis Castro hefur verið kynntur sem nýr stjóri Al-Nassr í Sádi-Arabíu en hann lætur af störfum hjá Botafogo í Brasilíu til að halda á vit ævintýranna í Mið-Austurlöndum.
Hjá Al-Nassr verður hann stjóri Cristiano Ronaldo og Marcelo Brozovic sem kom frá Inter nýlega.
Hjá Al-Nassr verður hann stjóri Cristiano Ronaldo og Marcelo Brozovic sem kom frá Inter nýlega.
Castro er portúgalskur og er fyrrum stjóri Al-Duhail í Katar, Shaktar Donetsk í Úkraínu og Porto í heimalandinu svo einhver félög séu nefnd.
Ekki er ólíklegt að Ronaldo hafi verið með í ráðum áður en Castro var ráðinn en talið er að Rudi Garcia hafi verið rekinn frá Al-Nassr á síðasta tímabili þar sem portúgalska ofurstjarnan var óánægð með hans störf.

It's official : ??
— AlNassr FC (@AlNassrFC_EN) July 6, 2023
Mr. Luis Castro is the New Head Coach of @AlNassrFC ????
Welcome Boss ???? pic.twitter.com/u6tdX9lbs9