Fotbolti.net
05.07.23 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Caglar Söyuncu til Atletico (Staðfest)

Caglar Söyuncu til Atletico (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Atletico Madrid í sumarglugganum. Bakvörðurinn Javi Galan kom frá Celta Vigo fyrr í þessari viku og nú er tyrkneski landsliðsmiðvörðurinn Caglar Söyuncu mættur.

Söyuncu kemur á frjálsri sölu frá Leicester City en enska liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Atletico.

Söyuncu er 27 ára og kemur með aukna breidd í vörn Diego Simeone. Leikmaðurinn var í brasi með spiltíma á síðasta tímabili en vill koma ferlinum aftur á almennilegt skrið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.