Ótti Textor að verða að veruleika - Mendes til Al-Rayyan (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ótti bandaríska viðskiptajöfursins John Textor er að verða að raunveruleika þar sem félagslið í hans eigu halda áfram að missa sína mikilvægustu menn til Sádí-Arabíu.
Textor sagði í viðtali fyrir um tveimur vikum síðan að hann óttaðist að sínir bestu menn yrðu margir komnir til Arabíu fyrir næstu leiktíð.
„Sádarnir eru að reyna að kaupa allt. Þeir vilja besta leikmanninn minn hjá Lyon, besta leikmanninn minn hjá Crystal Palace og líka bestu leikmennina og þjálfarann hjá Botafogo. Þeirra strategía er að kaupa allan fótboltaheiminn. Við verðum að bíða og sjá hvaða afleiðingar þetta hefur," sagði Textor meðal annars í viðtali í lok júní.
Textor er meirihlutaeigandi í Botafogo í Brasilíu og er Al-Nassr búið að stela portúgalska þjálfaranum Luis Castro í burtu frá félaginu, auk þess sem önnur arabísk félög eru að reyna að krækja í bestu leikmenn liðsins.
Textor á einnig hlut í Crystal Palace á Englandi og Lyon í Frakklandi og var Al-Rayyan að ganga frá kaupum á Thiago Mendes frá Lyon. Auk þess eru önnur félög í sádí-arabísku deildinni sem hafa áhuga á Alexandre Lacazette, markahæsta leikmanni Lyon á síðustu leiktíð.
Mendes er 31 árs miðjumaður með 134 leiki á fjórum árum hjá Lyon en þar áður var hann lykilmaður hjá Lille og hjá Sao Paulo í Brasilíu.
Þá hafa félög frá Sádí-Arabíu mikinn áhuga á Wilfried Zaha, besta leikmanni Crystal Palace, sem er nýlega orðinn samningslaus.
Textor er einnig eigandi RWD Molenbeek sem er nýlega búið að tryggja sér sæti í efstu deild í Belgíu.
Sjá einnig:
„Sádarnir vilja alla bestu leikmennina mína"


