Birkir Þór í Þrótt Vogum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur Vogum hefur samið við Birki Þór Guðmundsson sem fær leikheimild með félaginu þegar glugginn opnar þann 18. júlí.
Birkir er 26 ára varnar- og miðjumaður sem hefur verið hjá norska D-deildarliðinu Volda frá því að hann gekk í raðir þess í fyrra.

Birkir lék síðast með Þrótti Reykjavík hér á landi en hann lék einn leik í Lengjudeildinni 2021. Tímabilið þar á undan lék hann átján leiki í deildinni.
Hann kom upphaflega til Þróttar R. frá Aftureldingu 2017.
Þróttur Vogum er í 4. sæti 2. deildar karla, þremur stigum frá öðru sætinu en tvö efstu liðin komast upp í Lengjudeildina.