Pirlo ráðinn stjóri Sampdoria (Staðfest)

Andrea Pirlo hefur verið ráðinn stjóri Sampdoria og gerir tveggja ára samning við félagið.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24450 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Andrea Pirlo hefur verið ráðinn stjóri Sampdoria og gerir tveggja ára samning við félagið.

Andriy Yarmolenko er snúinn aftur til úkraínska félagsins Dynamo Kiev eftir sex ára fjarveru. Yarmolenko er 33 ára kantmaður sem ber fyrirliðabandið hjá úkraínska landsliðinu. Hann lék með Dynamo Kiev á árunum 2008-2017 og vakti athygli Dortmund sem keypti hann. Næsta stopp var West Ham þar sem hann var í fjögur ár og í fyrra skipti hann yfir til Al Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Manchester City hefur staðfest komu Mateo Kovacic til félagsins en það kaupir hann frá Chelsea. Króatíski landsliðsmaðurinn tekur treyju númer 8 hjá City og tekur við því númeri af Ilkay Gundogan sem samdi við Barcelona á dögunum. Kovacic er 29 ára gamall miðjumaður sem skrifar undir fjögurra ára samning við ensku meistarana.
Tottenham hefur fengið Guglielmo Vicario í sínar raðir frá ítalska félaginu Empoli. Markvörðurinn skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
Finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki er mættur í MLS-deildina í Norður-Ameríku en hann er búinn að skrifa undir samning við Minnesota United.
Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir hefur skrifað undir samning við Val og kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu. Hlíðarendafélagið hefur staðfest þetta.
Aron Elís Þrándarson er genginn í raðir Víkings á nýjan leik en hann hélt í atvinnumennsku eftir tímabilið 2014 hjá uppeldisfélaginu. Hann kemur nú heim eftir að hafa leikið með Álasundi í Noregi og OB í Danmörku. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Víking, gildir út tímabilið 2027.

Reading FC er búið að staðfesta samkomulag við spænska þjálfarann Rubén Sellés. Hann á aðeins eftir að fá samþykkt atvinnuleyfi.

Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska félagsins Sönderjyske. Frá þessu greinir danska félagið í dag. Grindvíkingurinn kemur frá pólska félaginu Slask Wroclaw. Hann var á Transfermarkt skráður með samning til 2025 við pólska félagið.
Brentford hefur fengið til sín átján ára varnarmann frá Suður-Kóreu, Ji-soo Kim, sem hefur gert fjögurra ára samning. Leikmaðurinn fer til að byrja með í varaliðið hjá Brentford. Kim kemur frá Seongnam í heimalandinu en hann lék nítján leiki fyrir félagið á sínu fyrsta tímabili með aðalliðinu.
Luka Modric hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Real Madrid og er nú bundinn félaginu til sumarsins 2024. Modric er 37 ára og hefur eins og svo margir verið orðaður við Sádi-arabísku deildina.
Maccabi Tel Aviv, sigursælasta félagslið Ísrael, hefur staðfest Robbie Keane sem nýjan stjóra félagsins en hann gerir tveggja ára samning. Liðið hafnaði í þriðja sæti á liðnu tímabili. Keane hefur starfað sem aðstoðarstjóri undanfarin ár, hjá Middlesbrough og írska landsliðinu og þá var hann í þjálfarateymi Sam Allardyce hjá Leeds á lokakafla nýliðins tímabils.
Manchester City hefur staðfest að Ilkay Gundogan mun yfirgefa félagið um mánaðamótin og ganga í raðir Barcelona á frjálsri sölu.

Sádí-arabíska félagið Al-Hilal er búið að staðfesta félagsskipti senegalska miðvarðarins Kalidou Koulibaly frá Chelsea.

Rúnar Már Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við rúmenska félagið Voluntari en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag.
Enska B-deildarfélagið Sunderland hefur fest kaup á hollenska miðverðinum Jenson Seelt en hann kemur til félagsins frá PSV Eindhoven.

Inter Miami er svo gott sem búið að staðfesta félagsskipti Sergio Busquets til sín frá Barcelona.

Bournemouth er búið að staðfesta kaup á hollenska kantmanninum Justin Kluivert sem kemur úr herbúðum AS Roma.

Marseille er búið að ráða Marcelino sem nýjan þjálfara félagsins á tveggja ára samningi.

Sádí-arabíska félagið Al-Hilal er búið að ganga frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Ruben Neves fyrir um 47 milljónir punda, eða 55 milljónir evra.