Leipzig borgar 25 milljónir fyrir Baumgartner (Staðfest)
<p>RB Leipzig er búið að festa kaup á miðjumanninum sóknarsinnaða Christoph Baumgartner fyrir um 25 milljónir evra.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24450 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>RB Leipzig er búið að festa kaup á miðjumanninum sóknarsinnaða Christoph Baumgartner fyrir um 25 milljónir evra.</p>
<p>Manchester United hefur staðfest brottför Zidane Iqbal frá félaginu en ekki er tekið fram hvort leikmaðurinn hafi verið seldur eða hvort aðilar hafi einfaldlega komist að samkomulagi um starfslok.</p>
Celta Vigo hefur ráðið Rafa Benítez sem nýjan stjóra félagsins. Frá þessu greinir félagið í dag. Benítez er 63 ára Spánverji sem hefur stýrt liðum á Englandi, Spáni, Ítalíu og í Kína á sínum ferli. Hann er þekktastur fyrir sín störf hjá Liverpool og þá náði hann frábærum árangri hjá Valencia.
Marley Blair hefur yfirgefið Keflavík en hann hefur gert samkomulag við félagið um riftun á samningi.
Burnley hefur fest kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea frá West Brom. Varnarmaðurinn er talinn kosta um sjö milljónir punda. O'Shea skrifar undir fjögurra ára samning við Burnley sem vann Championship deildina í vetur og verður því í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Portúgalski bakvörðurinn Raphael Guerreiro hefur formlega verið kynntur sem nýr leikmaður hjá þýska stórveldinu Bayern München. Hann kemur til Bayern á frjálsri sölu frá helstu keppinautunum í Borussia Dortmund. Þetta er ekki í fyrsta sinn þar sem leikmaður fer frítt frá Dortmund til Bayern en á sínum tíma fóru báðir Mario Götze og Robert Lewandowski á milli á frjálsri sölu.
Velska félagið Swansea City hefur staðfest nýjan stjóra en Michael Duff er tekinn við keflinu af Russell Martin.
Japanski landsliðsmaðurinn Koji Miyoshi skrifaði í gær undir tveggja ára samning við enska B-deildarfélagið Birmingham City.
Tom Davies, leikmaður Everton, hafnaði samningstilboði félagsins og mun því yfirgefa herbúðir þess um mánaðamótin. Everton greindi frá þessu í tilkynningu í dag.
Tyler Roberts er genginn í raðir Birmingham eftir fimm og hálft ár hjá Leeds United. Kaupverðið er óuppgefið og skrifar Roberts undir fjögurra ára samningi. Roberts hefur á sínum ferli verið viðloðinn velska landsliðið og á að baki 20 landsleiki. Hann er 24 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá WBA og lék hann á láni með QPR á liðnu tímabili.
Tyrkneska félagið Fenerbahce er búið að ganga frá samningi við bosníska sóknarmanninn Edin Dzeko. Hann kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu og skrifar undir tveggja ára samning.
Hinn 21 árs gamli Jeremy Sarmiento hefur framlengt við Brighton til ársins 2027.
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er genginn í raðir Blackburn Rovers frá CSKA Moskvu í Rússlandi en enska felagið staðfesti skiptin rétt í þessu.
Juventus festi í dag kaup á pólska framherjanum Arkadiusz Milik en hann kemur frá Marseille.
Russell Martin er nýr stjóri Southampton í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag.
Danski sóknarmaðurinn Oliver Haurits hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu greindi hann í Instagram færslu í síðasta mánuði. Haurits er einungis 22 ára gamall en leggur skóna á hilluna vegna þrálátra bakmeiðsla sem hann varð fyrir síðasta sumar í leik með HK. <i>„Ef þú vilt geta leikið þér með börnum þínum eftir tíu ár, þá ættiru kannski að íhuga að hætta núna."</I> segir í frétt <i>Tipsbladet</I> sem birt var á laugardag. Sérfræðingur sagði þessi orð við Haurits.
Ítalska félagið Roma hefur fengið miðvörðinn Evan Ndicka í sínar raðir. Hann kemur á frjálsri sölu frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt þar sem samningur hans var að renna út. Frankfurt vildi halda leikmanninum en Ndicka vildi ekki framlengja við félagið.
Real Madrid tilkynnti í dag að þýski miðjumaðurinn Toni Kroos væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og væri nú samningsbundinn fram á næsta sumar. Tíðindin hafa legið í loftinu undanfarna mánuði en Real ákvað fyrst núna að staðfesta framlenginguna.
Belgíska félagið Leuven hefur tilkynnt um komu Diljár Ýr Zomers til félagsins.
<p>N'Golo Kante er búinn að ná samkomulagi við Sádí Arabíska liðið Al-Ittihad um að ganga til liðs við félagið.</p>