Fotbolti.net
21.06.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kante orðinn samherji Benzema (Staðfest)

Kante orðinn samherji Benzema (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

N'Golo Kante er búinn að ná samkomulagi við Sádí Arabíska liðið Al-Ittihad um að ganga til liðs við félagið.

Kante mun gera fjögurra ára samning sem mun færa honum 100 milljónir evra.

Hann hittir þar landa sinn Karim Benzema sem skrifaði undir hjá liðinu fyrr í þessum mánuði.

Kante er 32 ára gamall Frakki sem fer til Sádí Arabíu frá Chelsea en þar spilaði hann 269 leiki frá árinu 2016 þegar hann gekk til liðs við Lundúnarliðið frá Leicester.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.