Diljá Ýr gengur til liðs við Leuven (Staðfest)

Diljá Ýr Zomers.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Diljá Ýr Zomers.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Belgíska félagið Leuven hefur tilkynnt um komu Diljár Ýr Zomers til félagsins.
Diljá er 21 árs gömul og er fjölhæfur leikmaður. Hún getur leyst flestar stöður framarlega á vellinum.
Síðustu árin hefur hún leikið í Svíþjóð með Häcken og Norrköping.
Undanfarin tvö ár hefur hún leikið með Norrköping en hún hjálpaði liðinu að komast upp í sænsku úrvalsdeildina á síðasta ári. Hún hefur skorað eitt mark í tólf leikjum í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu sem er núna í gangi.
Diljá, sem lék með FH, Stjörnunni og Val hér á landi, fer núna til Belgíu og semur við Leuven sem endaði í öðru sæti belgísku deildarinnar á tímabilinu sem kláraðist í síðasta mánuði.
Kærasti Diljár er landsliðsmaðurinn Valgeir Lunddal en hann er á mála hjá sænska meistaraliðinu Häcken. Það er spurning hvort hann sé einnig á leið til Belgíu en Valgeir, sem er bakvörður, byrjaði báða landsleikina sem voru núna á síðustu dögum, gegn Slóvakíu og Portúgal í gær.