Juventus kaupir Milik frá Marseille (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Juventus festi í dag kaup á pólska framherjanum Arkadiusz Milik en hann kemur frá Marseille.
Ítalska félagið fékk Milik á láni frá Marseille á síðasta ári og átti möguleika á að gera skiptin varanleg eftir tímabilið.
Það nýtti sér þann rétt og hefur nú gengið frá kaupunum og skrifaði sóknarmaðurinn undir langtímasamning.
Milik, sem er 29 ára gamall, skoraði 9 mörk í 39 leikjum með Juventus á síðasta tímabili.
Hann hefur áður spilað fyrir Napoli, Ajax, Augsburg og Bayer Leverkusen ásamt því að hafa skorað 17 mörk í 69 landsleikjum fyrir Pólland.

?? ???????????????????? ?
— JuventusFC (@juventusfc) June 21, 2023
Ancora insieme, @arekmilik9! ??