Fotbolti.net
22.06.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sarmiento framlengir við Brighton (Staðfest)

Sarmiento framlengir við Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Hinn 21 árs gamli Jeremy Sarmiento hefur framlengt við Brighton til ársins 2027.
Sarmiento kom til Brighton frá Benfica fyrir tveimur árum en hann lék níu leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Þessi öflugi sóknarsinnaði miðjumaður spilar með landsliði Ekvador en hann verður hjá Brighton næstu fjögur árin í það minnsta.

Samningur hans gildir til 2027 með möguleika á að framlengja um eitt ár til viðbótar.

Sarmiento er fæddur í Madríd en flutti ungur að árum til Bretlandseyja og spilaði með unglingaliði Charlton áður en hann hélt til Benfica. Hann lék fyrir yngri landslið Englands en ákvað að spila með A-landsliði Ekvador þar sem báðir foreldrar hans eru þaðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.