Fotbolti.net
22.06.23 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Roberts frá Leeds til Birmingham (Staðfest) - „Gerði mig að manni"

Roberts frá Leeds til Birmingham (Staðfest) - „Gerði mig að manni"
Canon

Mynd: EPA

Tyler Roberts er genginn í raðir Birmingham eftir fimm og hálft ár hjá Leeds United. Kaupverðið er óuppgefið og skrifar Roberts undir fjögurra ára samningi.

Roberts hefur á sínum ferli verið viðloðinn velska landsliðið og á að baki 20 landsleiki. Hann er 24 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá WBA og lék hann á láni með QPR á liðnu tímabili.
Hann kvaddi Leeds með færslu á Instagram í gær. Hann kom til félasins frá WBA í janúar 2018.

„Félagið sem breytti mér úr strák í mann. Félagið þar sem ég hef upplifað hæstu toppanna og lægstu lágpunktana, það er kominn tími til að kveðja," skrifar Roberts í færslunni sem sjá má hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.