Dzeko til Fenerbahce (Staðfest)

Edin Dzeko.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edin Dzeko.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneska félagið Fenerbahce er búið að ganga frá samningi við bosníska sóknarmanninn Edin Dzeko.
Hann kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu og skrifar undir tveggja ára samning.

Dzeko er kominn á síðustu ár ferilsins en hann er 37 ára gamall og rennur samningur hans við Inter út um mánaðamótin.
Dzeko skoraði 14 mörk og lagði upp fimm til viðbótar fyrir Inter á síðustu leiktíð. Hann hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en þar töpuðu þeir gegn Manchester City.
Framherjinn hefur spilað á Ítalíu síðustu átta ár - bæði með Inter og Roma - en þar áður lék hann fyrir Manchester City á Englandi og Wolfsburg í Þýskalandi.
Fenerbahce hafnaði í öðru sæti tyrknesku deildarinnar á síðasta tímabili.