Fotbolti.net
22.06.23 - 18:00
Brynjar Ingi Erluson

Davies fer frá Everton (Staðfest) - Hafnaði nýju samningstilboði

Davies fer frá Everton (Staðfest) - Hafnaði nýju samningstilboði
Canon

Mynd: Getty Images

Tom Davies, leikmaður Everton, hafnaði samningstilboði félagsins og mun því yfirgefa herbúðir þess um mánaðamótin. Everton greindi frá þessu í tilkynningu í dag.
Enski miðjumaðurinn er fæddur í Liverpool-borg og hefur alla sína tíð spilað fyrir Everton.

Hann á að baki 179 leiki og 7 mörk fyrir félagið en nú er komið að leiðarlokum.

Davies, sem er 24 ára, hafnaði nýju samningstilboði Everton og mun því yfirgefa félagið á frjálsri sölu um mánaðamótin en hann hefur úr mörgum tilboðum að velja.

Ástæðan fyrir því að hann hafnaði samningnum var að hann vildi fá meiri spiltíma og taldi hann sig ekki fá hann hjá Everton og því hefur hann ákveðið að leita á önnur mið.

Samkvæmt enskum miðlum hafa mörg frönsk félög áhuga á Davies.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.