Japanskur landsliðsmaður semur við Birmingham (Staðfest)

Mynd: Birmingham City

Mynd: Birmingham City
Japanski landsliðsmaðurinn Koji Miyoshi skrifaði í gær undir tveggja ára samning við enska B-deildarfélagið Birmingham City.
Þessi 26 ára gamli sóknarsinnaði miðjumaður kemur til Birmingham frá belgíska félaginu Antwerp en hann varð á dögunum deildarmeistari með liðinu.
Samningur hans við Antwerp var að renna út og kemur hann því á frjálsri sölu.
Hann hefur spilað þar síðustu þrjú ár en áður lék hann fyrir Kawasaki Frontale, Yokohama F. Marinos og Hokkaido Consadole Sapporo í heimalandinu.
Miyoshi á fimm A-landsleiki fyrir Japan og hefur skorað 2 mörk