Roma krækir í Ndicka (Staðfest)

Mættur til Roma.

Mynd: Heimasíða Roma

Mættur til Roma.

Mynd: Heimasíða Roma
Ítalska félagið Roma hefur fengið miðvörðinn Evan Ndicka í sínar raðir. Hann kemur á frjálsri sölu frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt þar sem samningur hans var að renna út.
Frankfurt vildi halda leikmanninum en Ndicka vildi ekki framlengja við félagið.
Frankfurt vildi halda leikmanninum en Ndicka vildi ekki framlengja við félagið.
Hann er fyrrum U21 landsliðsmaður Frakka og hafði verið hjá Frankfurt frá árinu 2018. Hann var því hluti af liðinu sem varð Evrópudeildarmeistari fyrir ári síðan og var fyrir ári síðan valinn í lið ársins í þýsku deildinni.
Ndicka er 23 ára gamall hávaxinn miðvörður sem uppalinn er hjá Auxerre. Hann skrifar undir fimm ára samning við Roma sem endaði í 6. sæti Serie A og verður í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Hann verður í treyju númer 5 hjá Roma.