Fotbolti.net
21.06.23 - 20:29
Brynjar Ingi Erluson

Arnór Sig til Blackburn Rovers (Staðfest) - Nýtti sér úrræði FIFA í annað sinn

Arnór Sig er mættur til Blackburn

Arnór Sig er mættur til Blackburn

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er genginn í raðir Blackburn Rovers frá CSKA Moskvu í Rússlandi en enska felagið staðfesti skiptin rétt í þessu.
Skagamaðurinn skrifaði undir samning til eins árs en hann nýtti sér í annað sinn úrræði FIFA vegna stríðsins milli Rússlands og Úkraínu. Honum var frjálst að semja við annað félagið til eins árs, líkt og hann gerði þegar hann fór til Norrköping.

CSKA mun því missa hann frítt á næsta ári þar sem samningur hans rennur út þá.

Eftir erfitt síðasta ár með Venezia hélt hann til Norrköping þar sem hann blómstraði og var einn af bestu leikmönnum sænsku úrvalsdeildarinnar.

Hann yfirgaf herbúðir Norrköping á dögunum og skrifaði síðan undir hjá Blackburn Rovers í dag.

Blackburn spilar í ensku B-deildinni og var grátlega nálægt umspilssæti á síðustu leiktíð en liðið kastaði því frá sér í lokahluta deildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.