Oliver Haurits leggur skóna á hilluna vegna meiðsla (Staðfest)

Skórnir komnir á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði eftirminnilegt mark gegn Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gekk í raðir HK í júlí í fyrra.

Mynd: HK

Skórnir komnir á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski sóknarmaðurinn Oliver Haurits hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu greindi hann í Instagram færslu í síðasta mánuði. Haurits er einungis 22 ára gamall en leggur skóna á hilluna vegna þrálátra bakmeiðsla sem hann varð fyrir síðasta sumar í leik með HK.
„Ef þú vilt geta leikið þér með börnum þínum eftir tíu ár, þá ættiru kannski að íhuga að hætta núna." segir í frétt Tipsbladet sem birt var á laugardag. Sérfræðingur sagði þessi orð við Haurits.

Hann gat valið um að halda áfram að spila og mögulega ekki getað hreyft sig eðlilega eftir tíu ár eða þá að kalla þetta gott og losna við sársaukann. Haurits valdi seinni kostinn.
Fjallað er um hann sem mikið efni þegar hann var að koma upp hjá Viborg og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik sextán ára gamall. Hann hélt í kjölfarið til Silkeborg þar sem hann spilaði ekki mikið með aðalliðinu og lék í B- og C-deild næsta eina og hálfa árið. Hann lék á sínum tíma þrjá leiki fyrir U16 landslið Dana.
Í júlí 2021 kom kallið frá Stjörnunni og ári síðar var hann fenginn í HK. Hjá HK byrjuðu bakmeiðslin sem hafa hrjáð hann núna í tæpt ár. „Ég fann fyrir sársauka, svo fór ég í sneiðmyndatöku. Þá var mér sagt að ég gæti byrjað að æfa aftur eftir þrjá mánuði, en þá fór ég að finna fyrir meiðslum annars staðar - aftan í læri og í nára - og ofan á það fann ég alltaf fyrir sársauka í bakinu."
Seinna fór Haurits í segulómun og þá kom alvarleiki meiðslanna betur í ljós. Hryggurinn var ekki eins og hann átti að vera. „Þá var staðan þannig að áhættan var mikil og allt gat farið mjög illa. Mér var ráðlagt að hætta í fótbolta," sagði Haurits við Tipsbladet.
„Þetta eru meiðsli sem ég er alltof ungur að fá. Það er erfitt - líka andlega, hvað á ég að gera núna?"
Haurits þarf núna að finna sér eitthvað annað að gera á næsta kafla í lífinu.
„Ég verð að viðurkenna að það var mjög erfitt að fá þessar fregnir. Ég hef alltaf elskað að spila fótbolta. Það er svo gaman að vera hluti af klefanum. Að skora mörk og vinna mikilvæga leiki. Það er það eina sem ég er vanur því það hefur verið starf mitt síðan ég var 15 ára gamall. Þetta er mikið andlegt umbrot og hefur áhrif á mitt daglega líf, suma daga meira en aðra. Þetta er ekki gaman," sagði Daninn.
Hann er líka svekktur með hvernig meiðslin voru meðhöndluð. „Það var röng byrjun að byrja á sneiðmyndatöku. Það er auðvelt núna að horfa til baka núna, en ég hefði haldið að það hefði verið tekið öðruvísi á þessu."
„Ég fékk aðstoð frá sjúkraþjálfara til að byrja með, en það sem ég þurfti var sérfræðingur."
Hann segir að líkaminn þurfi sjálfur að ná sér og er ekki á leið í aðgerð. „Líkaminn þarf að lækna sig sjálfur. Núna er ég á fyrsta stigi, þarf að styrkja allt í kringum bakið á mér."
„Þessi meiðsli geta þýtt að ég upplifi þrjá slæma daga í röð en fjórði dagurinn er ekki svo slæmur. Maður veltir því fyrir sér hvort þetta sé byrjunin á einhverju góðu og hvort þú getir farið út að hlaupa. Næsti dagur á eftir er svo aftur erfiður og þú byrjar allt aftur."
Skórnir eru komnir upp í hillu, Haurits er fluttur heim til Danmerkur og nýi kaflinn er að hefjast. Hann ætlar ekki að yfirgefa fótboltann alveg.
„Það sem ég geri þarf að tengjast eitthvað fótbolta. Ég elska leikinn og ég er ekki tilbúinn að sleppa takinu. En hvað ég geri veit ég ekki," sagði Haurits að lokum.
Eins og fyrr segir kom hann til Stjörnunnar árið 2021 og skipti svo í HK í lok félagskiptagluggans síðasta sumar. Hans verður sennilega alltaf minnst fyrir sitt fyrsta mark á Íslandi þegar hann skoraði með skoti fyrir aftan miðju gegn Víkingi þann 25. júlí 2021.
Hann lék 25 leiki á Íslandi og skoraði í þeim fjögur mörk. Hann náði ekki að spila með HK á þessu tímabili vegna meiðslanna.
Um markið:
Opnaði markareikninginn fyrir Stjörnuna með marki af 60 metrunum
Arnar hefur ekkert út á Dodda að setja: Ég klappaði fyrir þessu marki
Sjáðu mörk gærdagsins í Pepsi Max: Mark frá miðjuhringnum

Heimild: Tipsbladet