Fotbolti.net
21.06.23 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Toni Kroos áfram hjá Real (Staðfest)

Toni Kroos áfram hjá Real (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Real Madrid tilkynnti í dag að þýski miðjumaðurinn Toni Kroos væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og væri nú samningsbundinn fram á næsta sumar.

Tíðindin hafa legið í loftinu undanfarna mánuði en Real ákvað fyrst núna að staðfesta framlenginguna.
Kroos er 33 ára fyrrum landsliðsmaður Þýskalands en hann lagði landsliðsskóna á hilluna 2021.

Hann hefur verið hjá Real frá 2014 þegar hann kom frá Bayern Munchen. Á ferlinum hefur hann unnið Meistaradeildina fimm sinnum, sex sinnum orðið deildarmeistari, fjórum sinnum bikarmeistari, sex sinnum heimsmeistari með félagsliði sínu og einu sinni heimsmeistari með þýska landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.