Fotbolti.net
21.06.23 - 17:57
Brynjar Ingi Erluson

Russell Martin tekinn við Southampton (Staðfest)

Russell Martin tekinn við Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Southampton

Russell Martin er nýr stjóri Southampton í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag.
Ralph Hasenhuttl var rekinn frá Southampton í nóvember á síðasta ári eftir slakan árangur í úrvalsdeildinni og tók Ruben Selles tímabundið við.

Nathan Jones var ráðinn nýr stjóri liðsins stuttu síðar en hann entist aðeins fram í febrúar áður en Selles tók aftur við og stýrði liðinu út tímabilið.

Martin hefur nú tekið við stýrinu og er það aðalmarkmið hans að koma liðinu aftur í deild þeirra bestu. Hann skrifaði undir samning til 2026.

Martin stýrði Swansea í B-deildinni frá 2021 en áður var hann stjóri MK Dons.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.