FRÉTTIR20.06.2023, 09:51
Chelsea hefur tilkynnt um kaup á franska landsliðssóknarmanninum Christopher Nkunku frá þýska félaginu RB Leipzig fyrir 52 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður skoraði 16 mörk í 25 leikjum í Bundesligunni á síðasta tímabili.
FRÉTTIR19.06.2023, 17:39

Það var margt óljóst í kringum félagsskipti Giovanni Simeone frá Verona til Napoli síðasta sumar. Napoli borgaði 3,5 milljónir evra til að fá Simeone á eins árs lánssamningi.

FRÉTTIR19.06.2023, 17:23
Barcelona hefur staðfest kaup á átján ára varnarmanni, Mikayil Faye. Hann kemur frá NK Kustosija í Króatíu.

Faye er efnilegur miðvörður sem mun til að byrja með fara inn í unglingalið Börsunga.
FRÉTTIR19.06.2023, 14:13
Bournemouth hefur ráðið nýjan stjóra, Spánverjinn Andoni Iraola er mættur til starfa hjá félaginu.
FRÉTTIR19.06.2023, 13:00
Körfuboltamaðurinn Maciej Baginski hefur fengið félagaskipti frá Njarðvík í Hafnir. Það má sjá á heimasíðu KSÍ. Maciej er, eins og fyrsta orð greinarinnar gefur til kynna, talsvert þekktari fyrir sína körfuboltahæfileika en fótboltahæfileikana.
FRÉTTIR19.06.2023, 12:30
Real Madrid hefur náð samkomulagi við Espanyol um að fá sóknarmanninn Joselu á eins árs lánssamningi. Real hefur svo möguleika á því að kaupa Joselu í lok lánssamningsins.
Joselu hefur áður verið hjá Real því hann lék með varaliði félagsins í tvö ár eftir að hann varð tvítugur og lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2011. Eftir það hélt hann til Þýskalands, lék svo með Stoke og Newcastle á Englandi áður en hann sneri aftur til Spánar sumarið 2019.
FRÉTTIR19.06.2023, 12:27
Gísli Laxdal Unnarsson er búinn að skrifa undir samning við Val. Þetta staðfesti formaður Vals, Börkur Edvardsson, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Gísli mun að öllu óbreyttu ganga í raðir félagsins að tímabili loknu. Hann er að renna út á samningi hjá ÍA og gat Valur rætt við hann og boðið honum samning. Þungavigtin greindi frá því í gær að Gísli væri búinn að skrifa undir og nú hefur Valur staðfest tíðindin.
FRÉTTIR19.06.2023, 12:00
Celtic hefur staðfest að Brendan Rodgers sé aftur orðinn stjóri liðsins, fjórum árum og fjórum mánuðum eftir að hann hætti hjá félaginu til að taka við Leicester.
Rodgers tekur við Skotlandsmeisturum Celtic af Ange Postecoglou sem er orðinn stjóri Tottenham. Rodgers var rekinn frá Leicester í apríl.
FRÉTTIR19.06.2023, 11:39
Bournemouth hefur óvænt tekið þá ákvörðun að reka stjórann Gary O'Neil úr starfi.
Félagið greinir frá þessari ákvörðun sinni í tilkynningu í dag.
FRÉTTIR19.06.2023, 11:00
Varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson er búinn að fá félagaskipti yfir í Álftanes í 4. deild og getur hann byrjað að spila með liðinu núna.
FRÉTTIR19.06.2023, 10:17
Bakvörðurinn Ona Batlle hefur gengið frá samningi við Evrópumeistara Barcelona og mun leika þar á næstu leiktíð.
Hún kemur til Katalóníustórveldisins frá Manchester United þar sem hún hefur leikið síðastliðin þrjú ár.
FRÉTTIR19.06.2023, 06:00
Enska B-deildarfélagið Sunderland hefur fest kaup á Luis Hemir Silva Semedo frá Benfica.
FRÉTTIR18.06.2023, 15:39

Sævar Atli Magnússon kom inn á undir lok leiksins með landsliðinu gegn Slóvakíu í gær en í dag var tilkynnt að hann sé búinn að skrifa undir samning við Lyngby sem heldur honum hjá liðinu til ársins 2025.

FRÉTTIR17.06.2023, 19:11
Tottenham Hotspur hefur staðfest kaupin á sænska landsliðsmanninum Dejan Kulusevski frá Juventus en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
FRÉTTIR17.06.2023, 07:00
Franski miðjumaðurinn Timeoue Bakayoko er farinn frá Chelsea en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
FRÉTTIR16.06.2023, 23:42
Kristófer Ingi Kristinsson hefur yfirgefið hollenska félagið VVV Venlo. Kristófer gekk í raðir félagsins frá SönderjyskE síðasta haust og skrifaði undir eins árs samning.
Kristófer er 24 ára sóknarsinnaður leikmaður sem hefur leikið erlendis undanfarin sex ár. Hann gekk fyrst í raðir Willem II í Hollandi en hefur einnig leikið með Grenoble og Jong PSV á sínum ferli ásamt fyrrgreindum liðum.
FRÉTTIR16.06.2023, 19:11
Ramón Rodríguez Verdejo eða Monchi eins og hann er yfirleitt kallaður er nýr forseti fótboltamála hjá Aston Villa. Enska félagið staðfesti þetta með tilkynningu í kvöld.
FRÉTTIR16.06.2023, 18:00
Enska félagið Leicester City hefur staðfest ráðninguna á ítalska þjálfaranum Enzo Maresca en hann tekur við af Dean Smith.
FRÉTTIR16.06.2023, 17:55
Viðar Ari Jónsson mun í sumar finna sér nýtt félag eftir að hafa spilað með ungverska félaginu Honved í eitt og hálft tímabil.
Viðar gekk í raðir Honved í vetrarglugganum í fyrra en verður seint hægt að segja að hann hafi náð að fylgja eftir frábæru tímabili með Sandefjord þar á undan.
FRÉTTIR16.06.2023, 17:00
Romeo, sonur David Beckham, verður áfram hjá Brentford í ár til viðbótar og mun halda áfram að spila með varaliði félagsins.
Romeo er tvítigur sóknarmaður og hefur skrifað undir samning við félagið. Hann kom í janúar á lánssamningi frá Inter Miami og ákvað að framlengja veru sína á Englandi.