Andoni Iraola tekur við Bournemouth (Staðfest)

Andoni Iraola.

Mynd: EPA

Andoni Iraola.

Mynd: EPA
Bournemouth hefur ráðið nýjan stjóra, Spánverjinn Andoni Iraola er mættur til starfa hjá félaginu.
Þeir vinna hratt fyrir sunnan því Gary O'Neil var óvænt rekinn úr starfi sínu fyrr í dag.
O'Neil tók við Bournemouth snemma á nýafstöðnu tímabili eftir að Scott Parker var rekinn. O'Neil tók fyrst við til bráðabirgða en skrifaði svo undir samning eftir að hafa gert flotta hluti.
Þegar upp var staðið þá var hann einn af stjórum tímabilsins en hann bjargaði Bournemouth á endanum örugglega frá falli.
Iraola er fertugur, fyrrum leikmaður Athletic Bilbao og spænska landsliðsins. Hann var bakvörður á sínum ferli og lagði skóna á hilluna 2016.
Hann var síðast stjóri Rayo Vallecano þar sem hann gerði flotta hluti en áður en hann tók við því starfi árið 2020 hafði hann verið hjá AEK Larnaca á Kýpur og Mirandes á Spáni. Síðustu þrjú ár hefur hann verið hjá Vallecano en hann yfirgaf félagið í sumar eftir að hafa hafnað nýjum samningi.
Núna tekur hann til starfa á Englandi en hann hafði einnig verið orðaður við Leeds.