Fyrrum landsliðsmaður í körfubolta í 5. deild (Staðfest)

Í leik með Njarðvík.

Mynd: Mummi Lú

Í leik með Njarðvík.

Mynd: Mummi Lú
Körfuboltamaðurinn Maciej Baginski hefur fengið félagaskipti frá Njarðvík í Hafnir. Það má sjá á heimasíðu KSÍ. Maciej er, eins og fyrsta orð greinarinnar gefur til kynna, talsvert þekktari fyrir sína körfuboltahæfileika en fótboltahæfileikana.
Ef ferill hans er skoðaður sést að hann lék tvo leiki með 4. flokki Njarðvíkur sumarið 2008 en síðan ekki söguna meir þar til hann skipti yfir í Hafnir fyrir helgi.
Maciej er 28 ára gamall og á að baki sex A-landsleiki samkvæmt heimasíðu KKÍ. Hann var hluti af liði Njarðvíkur í vetur sem fór í undanúrslit úrslitakeppninnar í Subway-deildinni og varð deildarmeistari með liðinu 2022. Hann varð einnig bikarmeistari með liðinu 2021.
Hann flutti fimm ára til Íslands frá Póllandi og lék með öllum yngri landsliðunum í körfubolta. Hann kom ekki við sögu í leik Hafna og Álafoss á föstudag. Næsti leikur Hafna er gegn Stokkseyri á miðvikudag.
Hafnir eru í 2. sæti A-riðils í 5. deild.