Fotbolti.net
19.06.23 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gunnar Gunnars skiptir yfir í Álftanes (Staðfest)

Gunnar Gunnarsson.

Gunnar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson er búinn að fá félagaskipti yfir í Álftanes í 4. deild og getur hann byrjað að spila með liðinu núna.
Gunnar skiptir yfir í Álftanes frá Fram þar sem hann lék frá 2019 til ársins 2022.

Hann var byrjunarliðsmaður þegar Fram vann Lengjudeildina með yfirburðum tímabilið 2021 og lék á síðasta tímabilið sjö leiki þegar Fram var nýliði í Bestu deildinni.

Hann datt út úr myndinni hjá Fram um mitt sumar í fyrra. „Það er svolítill aðdragandi að þessu. Síðasta vor fer þetta grassera. Það var faglegur ágreiningur. Þrátt fyrir margar góðar stundir í félaginu þá var þetta komið á endastöð," sagði Gunnar í samtali við Fótbolta.net í mars síðastliðnum.

Gunnar er 29 ára miðvörður sem leikið hefur með Hamri, Gróttu, Val, Haukum, Þrótti og Fram á sínum meistaraflokksferli.

Í sama viðtali í mars sagði hann: „Ég er ekki að leita eftir því að semja við nýtt félag. Ég er búinn að heyra í nokkrum félögum en það er ekki eitthvað sem hefur togað í mig. Ef það kæmi eitthvað mjög spennandi myndi ég skoða það. Ég er með meira en nóg á minni könnu og fínt að fá að anda aðeins."

Álftanes er sem stendur í níunda sæti 4. deildar en það yrði stórt fyrir félagið ef Gunnar myndi leika nokkra leiki með liðinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.