Fotbolti.net
17.06.23 - 19:11
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham kaupir Kulusevski frá Juventus (Staðfest)

Dejan Kulusevski verður áfram hjá Tottenham

Dejan Kulusevski verður áfram hjá Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur staðfest kaupin á sænska landsliðsmanninum Dejan Kulusevski frá Juventus en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Enska félagið fékk Kulusevski á átján mánaða lánssamningi í janúarglugganum á síðasta ári og sló hann í gegn á tíma sínum hjá félaginu.

Tottenham átti möguleika á því að kaupa hann fyrir 30 milljónir punda en félagið náði að lækka kaupverðið niður í 25 milljónir punda.

Kaupin voru staðfest í dag og skrifaði hann undir langtímasamning við félagið.

Kulusevski hefur komið við sögu í 57 leikjum í öllum keppnum með Tottenham og skorað 7 mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.