Fotbolti.net
18.06.23 - 15:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sævar Atli framlengir við Lyngby (Staðfest) - „Elska Lyngby"

Sævar Atli í leiknum í gær

Sævar Atli í leiknum í gær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Atli Magnússon kom inn á undir lok leiksins með landsliðinu gegn Slóvakíu í gær en í dag var tilkynnt að hann sé búinn að skrifa undir samning við Lyngby sem heldur honum hjá liðinu til ársins 2025.

Sævar Atli er 23 ára gamall sóknarmaður en hann gekk til liðs við Lyngby árið 2021 frá uppeldisfélaginu sínu Leikni.

Hann leikur þar undir stjórn Freys Alexandersonar. Kolbeinn Finnsson og Alfreð Finnbogason leika einnig með liðinu.

„Ég hef ákveðið að framlengja samninginn því ég einfaldlega elska Lyngby. Ég elska að koma á hverjum degi með liðsfélögunum og tala við alla í kringum félagið," sagði Sævar.

„Maður finnur hversu ástríðufullir allir eru í kringum félagið og það smitar út frá sér. Það er eitthvað einstakt fyrir mig að labba inn á Lyngby völlinn."

Lyngby bjargaði sér frá falli úr efstu deild á hádramatískan hátt í síðustu umferðinni á dögunum.

„Það var stórkostlegur dagur og stuðningsmennirnir voru magnaðir. Þetta var magnað, dagur sem ég mun aldrei gleyma," sagði Sævar.

Sævar Atli: Mesta afrek á mínum fótboltaferli

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.