Fotbolti.net
19.06.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sunderland kaupir framherja Benfica (Staðfest)

Sunderland kaupir framherja Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Sunderland hefur fest kaup á Luis Hemir Silva Semedo frá Benfica.
Semedo er 19 ára gamall og gerir fimm ára samning við Sunderland en kaupverðið er ekki gefið upp.

Hann spilaði með bæði U23 ára og B-liði Benfica síðustu tvö tímabil þar sem hann skoraði 28 mörk í 61 leik.

„Þetta er stór félagaskipti fyrir mig og er ég spenntur að vera kominn hingað,“ sagði Semedo.

„Sunderland er með marga unga leikmenn sem spila mikilvæga rullu í liðinu og því held ég að þetta verði gott skref til að þróa ferilinn. Ég er spenntur að hitta nýju liðsfélagana, sjá leikvanginn og fá að upplifa stemninguna í kringum stuðningsmennina,“ sagði hann í lokin.

Sunderland komst í umspilið um sæti í úrvalsdeildina en datt út í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.