Enzo Maresca er nýr stjóri Leicester (Staðfest)

Mynd: Leicester

Mynd: Leicester
Enska félagið Leicester City hefur staðfest ráðninguna á ítalska þjálfaranum Enzo Maresca en hann tekur við af Dean Smith.
Leicester féll niður í B-deildina eftir lokaumferðina í úrvalsdeildinni en Smith tók við eftir að Brendan Rodgers var rekinn.
Smith stýrði liðinu aðeins til sigurs í tveimur leikjum af átta áður en hann lét af störfum.
Leicester hefur nú fundið arftaka hans en Enzo Maresca skrifaði undir þriggja ára samning í dag.
Hann hefur verið aðstoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City undanfarin ár ásamt því að þjálfa U23 ára liðið.
Maresca þjálfaði áður Parma á Ítalíu ásamt því að hafa aðstoðað hjá West Ham, Ascoli og Sevilla.
„Við eigum stórt tímabil framundan. Markmiðið í byrjun er að spila eins vel og við getum og síðan getum við byggt liðið með okkar hugmyndaræði. Það mikilvægasta er að reyna að vinna leiki,“ sagði Maresca.